5. október 2026
Samrunanum lokið og tímamótum hjá Korda fagnað
Samruna Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar er lokið og sameinað félag hefur hafið starfsemi undir merkjum Korda. Félagið tók formlega til starfa 1. september og sameinar rekstur mikilvægra fjarskipta- og öryggisinnviða landsins.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Marta Eiríksdóttir, stjórnarformaður Korda, og Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri félagsins, fögnuðu tímamótunum við móttöku í höfuðstöðvum Korda föstudaginn 2. október og ávörpuðu gesti.
Með sameiningunni eru sérhæfð þekking og mikilvæg fjarskiptakerfi færð undir eina stjórn til að auka skilvirkni og styrkja rekstraröryggi. Korda annast m.a. rekstur fjarskiptasæstrengja sem tengja Ísland við umheiminn, Tetra-öryggisfjarskiptakerfisins og tæknikerfa sem styðja við starfsemi Neyðarlínunnar og viðbragðsaðila um land allt.

Fleiri fréttir
19. október 2026
Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi fyrir viðbragðsaðila á Íslandi
Dómsmálaráðherra greindi frá því að undirbúningur fyrir næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi sé hafinn í opnunarávarpi sínu á Björgun 2026 í Hörpu.
1. september 2026
Korda tekur til starfa 1. september
Sameinað félag Farice, Öryggisfjarskipta og tæknihluta Neyðarlínunnar mun bera nafnið Korda og verður líflína neyðar- og öryggisfjarskipta á Íslandi og tenginga við umheiminn.
23. apríl 2026
Farice undirbýr nýjan sæstreng milli Íslands og Skotlands
Fyrirtækið Farice, sem á og rekur sæstrengina FARICE-1, DANICE og ÍRIS, hefur hafið undirbúning að nýjum sæstreng sem mun liggja milli suðurhluta Íslands og Skotlands.