Sæstrengir
Korda rekur þrjá sæstrengi sem tengja íslensk fjarskiptafélög við umheiminn og erlenda aðila við gagnaver landsins.
Korda ber því ábyrgð á flutningsgetu og öryggi megin fjarskiptatenginga Íslands við útlönd.
Strengirnir eru hannaðir til að bera mjög mikla fjarskiptaumferð í 20 til 30 ár en hluti af verkefnum Korda er að sjá um tímanlega endurnýjun þeirra. Öryggis tenginganna er gætt bæði á sjó og á landi og er tryggt að þjónustan sé aðgengileg þrátt fyrir að ákveðnir leiðarhlutar netsins kunni að rofna. Frá því að strengirnir voru lagðir hefur aldrei orðið bilun í sjó í sæstrengjum Korda.
Sæstrengir Korda
Á þessari mynd sjást helstu þjónustustaðir Korda. Korda getur auk þess boðið 10G/100G sambönd víðar t.d. um Skandinavíu.

Vaktborð (NOC)
Korda rekur vaktborð sem er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins. Við hvetjum viðskiptavini Korda til að hafa samband lendi þeir í rekstrarvandamálum.
- Netfang: noc@korda.is
- Sími: +354 568 1050
Viðskiptaupplýsingar
Gagnaflutningsþjónusta yfir sæstrengi
Korda býður háhraðafjarskiptasambönd frá innlendum gagnaverum og helstu skiptistöðvum á Íslandi til Bretlands, Írlands, Færeyja og meginlands Evrópu um nútímalega og öfluga sæstrengi, IRIS, DANICE og FARICE-1. Korda selur þjónustu sína til fjarskiptafyrirtækja á Íslandi og til alþjóðlegra viðskiptavina.
Þjónusta Korda yfir sæstrengi er 100 Gb og 400 Gb ljósbylgjusambönd.
Verðskrá Korda 2026
100G og stærri ljósbylgjusambönd
Á innanlandsmarkaði (Telco) eru sambönd seld með magnmælingu umferðar. Magnmæld umferð er í boði á 10G og 100G portum (bandvídd). Viðskiptavinir fá þá stærð af bandvídd/portum sem hæfir þeirri skuldbundinni umferð sem þeir kaupa að lágmarki. Umferðarmæling er reiknuð með 95% percentile mælingu (CDR) úr safni mánaðarlegra mælinga með 5 mínútna söfnunarbili (upplausnin). Viðskiptavinir semja um lágmarksskaup (CDR) yfir árið og fá afhenta bandvídd yfir þrjá sæstrengi.
| Fast tengigjald fyrir hvert samband | Mánaðargjald |
|---|---|
| 100G/Samband 1/streng | 7.500 € |
| 100G/samband 2-4/streng | 2.500 € |
| 10G/Samband 1/streng | 1.750 € |
| 10G/Samband 2/streng | 1.300 € |
Akureyri aukagjald
| Fast tengigjald fyrir hvert samband | Mánaðargjald |
|---|---|
| 100G/Samband/streng | 1.000 € |
| 10G/samband/streng | 250 € |
| Fast tengigjald fyrir hvert samband | Mánaðargjald |
|---|---|
| Umsamið notkunargjald (CDR) (95% percentile) per Mb/s | 1,37 € |
| Umframnotkunargjald (95% percentile) per Mb/s | 1,51 € |
Notkunargjald hvert Mb/s er 1,37€ á mánuði (fyrir CDR). Umframnotkunargjald er €1,51 á Mb/s (BDR). Mæling er mæld með 95th percentile aðferð, þ.e.a.s 5% af mælingatoppum eru fjarlægðir til að finna ígildi hámarksumferðar.
Samningar eru til 12 mánaða hverju sinni og skulu endurskoðaðir árlega og eigi síðar en fyrir 1.október ár hvert.
Þau skilyrði eru sett að keypt séu að jafnaði jafnstór sambönd á hverjum hinna þriggja sæstrengja. Lágmarkskaup hvert ár í magni eru 20% CDR af getu hvers sambands hvers sæstrengs.
Skilyrði
Ekki er heimilt að senda umferð milli category 1 (Telco) og category 2 (DC) flokka á annanhvorn veginn á neinum tíma.
Frekari upplýsingar um aðrar útfærslur og þjónustur má fá hjá sölumönnum sala[hjá]korda.is
Almennir viðskiptaskilmálar
Mikilvægar upplýsingar fyrir sjófarendur
Ef líkur eru á að veiðarfæri hafi eða akkeri hafi fest í einum af sæstrengjunum vinsamlegast hringið í það númer sem við á hverju sinni.
Íslenskt svæði
+354-800-1050Grænlenskt svæði
Hringja í Aasiaat Radio, GreenlandKanadískt svæði
+1-888-545-3535Útgerðir og fiskveiðiskip
Um umgengni við sæstrengi gilda lög og reglugerðir sem við biðjum sjófarandur að virða
Korda leggur sig fram við að tryggja sem best öryggi veiðiskipa og áhafna. Ef upp koma vandamál vegna veiða við sæstrengina má hringja í síma 800 1050
Að festa veiðarfæri í sæstreng getur verið varasamt. Á svæðum þar sem sæstrengir liggja geta veiðarfæri sem snerta hafsbotninn og akkeri skapað verulega hættu bæði fyrir skip og áhafnir en ekki síður fyrir sæstrengina. Snerting við sæstrengi getur einnig valdið truflunum á alþjóðlegum fjarskiptum og skaðað víðtækari efnahagslega hagsmuni. Viðgerðir á sæstrengjum eru þar að auki mjög kostnaðarsamar.



