Vaktstöð siglinga
Öruggar siglingar
Vaktstöð siglinga tryggir öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna og eflir varnir gegn mengun sjávar frá skipum.
Skip sem sigla um íslenska efnahagslögsögu fá þar fjarskiptaþjónustu, neyðar- og öryggisþjónustu auk almennrar siglingaþjónustu.
Ráðherra fer með yfirstjórn mála er varðar Vaktstöð siglinga en Vegagerðin og Samgöngustofa fer með framkvæmd þeirra. Vegagerðin hefur falið Korda að annast allan rekstur fjarskipta- og upplýsingakerfa og Landhelgisgæslunni mönnun vaktstöðvarinnar.

Fjarskiptaþjónusta
Fjarskiptaþjónustu við skip á hafsvæðinu við og umhverfis landið er fjarstýrt frá Vaktstöð siglinga.
Vaktstöð siglinga
Neyðar- og öryggisþjónusta sjófarenda
Vaktstöð siglinga er ætlað að sjá um eftirtalin atriði sem varða neyð og öryggi sjófarenda á hafsvæðinu umhverfis Ísland
Vöktun og eftirlit sjálfvirks tilkynningarkerfis skipa (STK), þ.m.t. sjálfvirks alþjóðlegs auðkenningarkerfis skipa (AIS)
Móttöku og miðlun tilkynninga frá skipum sem flytja hættulegan og/eða mengandi varning
Móttöku og miðlun neyðarkalla til viðeigandi aðila auk tilkynninga um óhöpp eða slys á sjó
Móttöku og miðlun tilkynninga frá farþegaskipum vegna talningar og skráningar farþega
Vöktun alþjóðlegs neyðar- og öryggisfjarskiptakerfis skipa (GMDSS) og ritstjórn fyrir þjónustu alþjóðlegs viðvörunarkerfis skipa (NAVTEX)
Skráningu skipa sem falla undir hafnarríkiseftirlit
Móttöku tilkynninga og miðlun upplýsinga um bilanir í vitakerfinu og farartálma á sjó
Móttöku og miðlun annarra upplýsinga samkvæmt lögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim um samræmda afhendingu og miðlun upplýsinga um flutninga á sjó
Móttöku upplýsinga um úrgang og farmleifar skipa
Vöktun og greiningu verndarupplýsinga í tilkynningum í SafeSeaNet-kerfinu
Samskipti við hafnir sem Samgöngustofa hefur útnefnt sem skipaafdrep
Önnur verkefni í þágu þriðja aðila sem Vegagerðin heimilar
Önnur verkefni sem ráðherra telur í þágu almannaheilla
Ef tilkynning berst ekki frá skipi á reglulegum tíma eða ef Vaktstöð siglinga berast upplýsingar sem gefa til kynna að þörf sé á eftirgrennslan, leit eða björgunarskips í íslenskri efnahagslögsögu eru nauðsynlegar ráðstafanir gerðar í samráði við alla sem geta veitt aðstoð
Sjósókn
Samantekt um ferðir íslenskra skipa í kringum Ísland. Lifandi gögn frá kerfi Vaktstöðvar siglinga: